Þátttakendur skulu fara vel með búnað TAG. Ekki má henda honum, valda skaða eða meðhöndla á annan hátt en kveðið er á um í umgengnisreglum.
Byssum skal halda með báðum höndum og þátttakendur skulu ekki leggja þær frá sér þar sem hætta er á að þær týnist, blotni eða verði fyrir tjóni.
Til að leikir gangi vel fyrir sig og búnaður týnist ekki eða verði fyrir skemmdum, skulu keppendur ekki skilja eftir byssur, skynjaravesti og/eða höfuðbönd TAG nema við tilætlaðan söfnunarstað.
Þátttakendur skulu ekki nota aukahluti TAG, svo sem handsprengjur, rafarmbönd, skífur, fána, skothólk, talstöðvar eða aðrar eignir TAG án leyfis starfsmanns. Ávallt skal fylgja leiðbeiningum starfsmanna við notkun aukahluta og getur tjón sem hlýst af brotum á þeirri reglu verið bótaskylt af kaupanda.
Ef viðburðurinn fer fram á opinberum svæðum eða í náttúru bera þátttakendur ábyrgð á því að skilja ekki eftir flöskur, umbúðir eða annað rusl eftir á staðnum.
Þátttakendur skulu sýna öðrum á opinberum svæðum kurteisi og ekki valda óþarfa ónæði. Brjóti þátttakendur í bága við umgengnisreglur áskilur TAG sér rétt til að stöðva viðburð án endurgreiðslu.