Algengar spurningar og svör (FAQ)
Lasertag er leikur þar sem leikmenn spila í hópum og nota „geislabyssur“ til að skjóta ósýnilegum geisla á vesti andstæðingsins. Þegar leikmaður hittir andstæðinginn fær hann stig og missir andstæðingur stig á móti. Hægt er að spila ótal margar tegundir leikja og hægt að útfæra leikinn fyrir hvern hóp og eftir staðsetningu. Kerfi heldur utan um stigin og því hægt að skoða tölfræði eftir hvern leik.
Verð fyrir lasertag er breytilegt eftir fjölda leikmanna, staðsetningu og tímalengd. Hentu á okkur línu hér og við sendum á þig tilboð fyrir þinn hóp.
Hægt er að spila lasertag nánast hvar sem er, bæði innan- og utandyra. Höfum við haldið lasertag á nánast öllum tegundum af stöðum, höfuðstöðvum fyrirtækja, íþróttasölum, vörulager, skrifstofuhúsnæði, skemmtigarði, skóglendi, bústöðum og lengi mætti telja.
Ef þú ert óviss með hvort svæði henti vel þá höfum við áralanga reynslu af því að sjá hvernig svæði koma út og getum einnig mælt með nokkrum góðum stöðum innan- og utandyra.
Ef þú ert óviss með hvort svæði henti vel þá höfum við áralanga reynslu af því að sjá hvernig svæði koma út og getum einnig mælt með nokkrum góðum stöðum innan- og utandyra.
Í bókuninni er innifalið allt sem viðkemur lasertaginu. Starfsmenn mæta fyrir viðburðinn, setja upp búnaðinn, sjá um kennslu á helstu atriðum og passa að allt gangi vel á meðan leikjum stendur. Að auki bjóðum við upp á Soundboks hátalara sem hægt er að tengja sig við og spila tónlist að eigin vali á meðan viðburði stendur.
Það allra mikilvægasta er að finna gott svæði, innan- eða utandyra. Ef svæðið er frekar opið gæti verið gott að setja upp hindranir sem hægt er að skýla sér á bakvið. Ekki hika við að hafa samband við okkur með spurningar er varðar staðsetninguna, hindranir eða aukahluti á svæðinu.
Ágætt er að setja upp borð þar sem þátttakendur geta lagt frá sér byssurnar inn á milli og stað þar sem fólk getur lagt frá sér aukaföt eða verðmætin á meðan leikum stendur. Ekki er nauðsynlegt fyrir okkur að komast í rafmagn.
Ágætt er að setja upp borð þar sem þátttakendur geta lagt frá sér byssurnar inn á milli og stað þar sem fólk getur lagt frá sér aukaföt eða verðmætin á meðan leikum stendur. Ekki er nauðsynlegt fyrir okkur að komast í rafmagn.
Lasertag hentar fjölbreyttum aldurshópi og getustigi leikmanna. Lágmarksaldur er 6 ára en enginn ákveðinn hámarksaldur er settur. Enginn sársauki hlýst að því að vera skotinn af lasernum og er búnaðurinn fremur léttur og meðfærilegur.
Fyrir leiki utandyra er ágæt regla að búast við því versta í veðurfari. Til dæmis er gott er að taka með sér léttan skeljakka ef einhverjar líkur eru á dropum. Mikilvægast er þó að vera vel skóaður eftir aðstæðum, til dæmis að velja skó með góðu gripi ef undirlag gæti verið sleipt eða blautt.
Fyrir leiki innanhús er gott að velja föt sem er þægilegt að hreyfa sig í. Áreynsla í leikjum er í höndum hvers leikmanns og því hægt að velja sinn hraða og álag. Oftast eru einhverjar mínútur á milli leikja og er þá hægt aðeins hægt að ná andanum ef áreynslan er mikil.
Fyrir leiki innanhús er gott að velja föt sem er þægilegt að hreyfa sig í. Áreynsla í leikjum er í höndum hvers leikmanns og því hægt að velja sinn hraða og álag. Oftast eru einhverjar mínútur á milli leikja og er þá hægt aðeins hægt að ná andanum ef áreynslan er mikil.
Hægt er að spila lasertag utandyra í flestum veðuraðstæðum. Helsta hindrunin er mikil rigning eða hálka á svæðinu. Nokkrum dögum fyrir viðburð tökum við stöðuna og sjáum hvort viðri ekki vel fyrir viðburðinn. Þurfi að færa eða hætta við viðburð vegna veðurs má sjá svar við spurningu þess efnis hér neðar.
Til þess að tryggja góða keppni á milli liða mælumst við með að þátttakendur séu að minnsta kosti 10 í heildina. Í hverju liði geta verið allt að sjö þátttakendur og er algengast að skipt sé í þrjú til fjögur lið svo hægt sé að hvíla á milli. Hægt er að skipta stærri hópum í fleiri lið með riðlum eða lengri pásum á milli leikja.
Svo sannarlega. Þrátt fyrir að Reykjavík sé í nafninu okkar þá bjóðum við upp á að koma til hópa allsstaðar á landinu. Hentu á okkur línu hér og við gefum þér okkar besta verð fyrir ferðalagið til ykkar.
Algengustu leikirnir sem henta flestum hópum er stigaleikur, president, deathmatch, last man standing og capture the flag. Einnig sérsníðum við oft leiki eftir aðstæðum og staðsetningu hverju sinni. Það eru lítil takmörk fyrir því hvað er hægt að spila. Ef þú ert með einhvern ákveðinn leik í huga þá væri best að heyra í þér aðeins fyrir viðburðinn.
Ef þú þarft að hætta við eða fresta viðburði af einhverri ástæðu þá er best að heyra í okkur sem allra fyrst í tölvupósti eða síma. Við bjóðum upp á frekar sveigjanlega og sanngjarna afbókunarvalkosti sem ættu að skilja alla eftir sátta. Kynntu þér skilmálana hér.
Fannstu ekki svar við spurningunni þinni?
Ekki hika við að senda á okkur línu í gegnum tölvupóst, í síma eða í gegnum takkann hér að neðan.
Hafa samband